Viðfangsefni: Æfa skyndihjálp
Aldur: Miðstig
Námsgreinar: Lífsleikni
Tími: Eftir hentugleika, gott uppfyllingarefni.
Markmið
Að nemendur
· Kynnist skyndihjálp við krefjandi aðstæður
. læri helstu atriði skyndihjálpar s.s. að stöðva blæðingu og koma sjúklingi í
læsta hliðarlegu.
· öðlist virðingu fyrir kröftum náttúrunnar
· og læri að skilja mikilvægi þess að líkaminn kólni ekki
· efli tjáningu og samskipti
Stutt verkefnalýsing
Verkleg skyndihjálp og umræður. Hópurinn hjálpast að við að vinna skyndihjálparverkefni á staðnum.
Kennslugögn
-
Myndbönd um slys eða slasaða af vefnum.
-
Glærur og umræður.
-
Kennsluefni og verkefni af þessum vef.
-
Plöstuð verkefni fyrir nemendur.
-
Sjúkrakassi og nægilegt af umbúðum til æfinga.
Stuðningsefni
„Getur þú hjálpað." Bæklingur um skyndihjálp fyrir almenning, gefinn út af RKÍ
RKÍ hefur einnig gefið út veggspjald sem gott er að hengja upp í stofu nemenda þegar verið er að vinna með skyndihjálp.
Einnig vil ég benda kennurum á að RKÍ hefur gefið út nokkuð af kennsluefni, bókum og myndböndum ætlað grunnskólanemum (sjá heimasíðu rkí)
Framkvæmd / vinna
Forvinna (undirbúningur / kveikja): Myndbönd um slys eða hjálp í viðlögum. Umræður um mikilvægi þess að geta veitt fyrstu hjálp þegar langt er í næsta sjúkrahús.
Fara með þeim í skyndihjálp. Leggja mesta áherslu á greiningu hins slasaða og almenna skyndihjálp, læsta hliðarlegu, meðferð brunasára og spelkun brota.
Kenna má ýmis atriði skyndihjálpar og leifa nemendum að vinna með efnið á ýmsan máta. T.d. stöðvarvinna þar sem hver stöð kennir einn þátt en glærur má finna á síðunni „Grundvallaratriði í skyndihjálp".
Á vettvangi: Verkefni þar sem þau þurfa ýmist að leika slasaða eða hlúa að slösuðum.
Námsmat
Sjálfsmat er mjög gott, en áframhaldandi námi í skyndihjálp með úttekt og skírteini frá fagaðila væri metnaðarfullt markmið hvers skóla.
Kennsluefni og verkefni
Efni til stuðnings kennurum sem vilja kenna skyndihjálp, lesefni og glærur.

