Sýnatökur og mælingar

Viðfangsefni: Taka sýni til skoðunar ásamt því að reikna út straumahraða og breidd árinnar.


Aldur:
Miðstig.


Námsgreinar:
Náttúrufræði.


Tími:
 60 mínútur.

 

 

Markmið

 Að nemendur

 - kynnist smádýrum sem lifa í vatni

 - þjálfist í að greina smádýr með aðstoð víðsjár, greiningarlykla og handbóka

 - átti sig á einkennum og fjölbreytileika smádýra, og geta teiknað þau

 - kynnist flokkunarkerfum lífvera

 - átti sig á mikilvægu starfi smádýra fyrir náttúruna í heild.

 - læri að mæla straumhraða

 - átti sig á áhrifum straumhraða á lífríki árinnar

 - kynnist vísindalegum vinnubrögðum, einkennum tilrauna og athugana 

 Stutt verkefnislýsing

 Taka á sýni af botni árinnar, steini sem er 1-2 metra frá bakka og svifsýni (úr rennandi vatni). Skoða með berum augum og í víðsjá.  Teikna og greina smádýr sem finnast.

 Einnig reikna nemendur út straumhraða árinnar; mæla 25 metra eftir árbakkanum og merkja inn byrjunarpunkt og endapunkt. Þeir kasta trékubbi útí ána fyrir ofan byrjunarpunkt og taka tímann, hvað hann er lengi að fara frá byrjunarpunkti að endapunkti eða 25 metra. Nemendur þurfa síðan að reikna út straumhraða árinnar (sjá vinnublað nemenda). Einnig reikna þeir út breidd árinnar.

 Kennslugögn

 Nemendablöð og kennslubækur um lífríki í fersku vatni. Bursta, skál, sprautuflösku, dollur, fötur og háfa. Víðsjár og tilheyrandi búnaður til smádýraskoðunar (kennarar Laxárskólans koma með kennslugögn).

 Framkvæmd / vinna

Forvinna (undirbúningur / kveikja): Kennari ræðir við nemendur, hvort þeir hafi einhvern tíma tekið upp slý úr á, hvort þeir viti hvað það sé og hvort þeir haldi að þar leynist eitthvað líf. Umræður um smádýr í ferskvatni og sýnatöku með háfi. Kynna fyrir nemendum hvernig háfur er gerður (heimavinna).

Lesa um líf í ferskvatni, t.d. kaflann „Lífverur í fersku vatni” í bókinni „Lífríki í fersku vatni" sem Stefán Bergmann endursamdi, klárað heima niður bls.32. Sumt finnst ekki í straumvatni, afhverju?? -Hugleiða.

Á vettvangi: Nemendur fara eftir leiðbeiningum við töku ferskvatnssýna, sjá nánar í verkefnalýsingu um sýnatökur og vinnubók. Einnig mæla nemendur straumhraðann og reyna við breidd árinnar.

Ein þrautalausn er hér á síðunni, stærðfræðiþraut þar sem nemendur glíma við að finna út aðferð til að mæla vegalengdina yfir ána. Starfsmenn frá Náttúrustofu hafa meðferðis kíki til að mæla með vegalengd og er því hægt að sannreyna hvort glíman hafi tekist.

Eftirvinna (úrvinnsla / ígrundun): Þegar heim er komið skoða nemendur smádýrin í víðsjám og reyna að teikna þau upp eins nákvæmt og þau geta. Nemendur reyna síðan, með aðstoð kennara, greiningarlykla og handbóka, að átta sig á hvaða smádýr þetta eru.

Gott er að nota greiningalykil námsgagnastofnunar ásamt bókinni Lífríki í fersku vatni. Fyrir kennara er gott að vera búinn að fletta bók Helga Hallgrímssonar (1979); Veröldin í vatninu. Handbók um vatnalíf á Íslandi. 

Reikna þarf út straumhraða og meðaltöl. Útbúa súlurit og skoða hvort allir hópar hafi fengið svipaðar niðurstöður.

 Námsmat

 Fylgjast með krökkunum á vettvangi, meta áhuga, vandvirkni og frumlegheit og svo skýrslu og vinnubók í lokin. Meta má háfinn sérstaklega og jafnvel veita verðlaun fyrir frumlegasta háfinn.

 Verkefni

 Háfur

 Sýnatökur

 Vinnubók - sýni

  Straumhraðinn

 Þrautalausn 1 

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning